Langar fasteignakeðjur virðast vera séríslenskt fyrirbæri og þegar Félag fasteignasala kannaði þetta á norðurlöndunum þá kom í ljós að þetta er nánast óþekkt og ef það kæmi upp á þá kæmu bankarnir að málum með skammtímafjármögnun.
Þegar ég byrjaði að selja fasteignir 2003 þá þekktist þetta ekki og það var upp úr hruninu 2008 sem þetta byrjaði en í dag virðist ekki skipta máli hvort að það sé góð sala eða dræm flestir vilja setja inn tilboð með fyrirvara um sölu.
Það er mikilvægt að hafa í huga að tilboð með fyrirvara um sölu er í raun bara vilyrði að fólk vilji kaupa eignina þína ef allt gengur upp. Keðjur geta undið upp á sig og það er ekkert óalgengt að það séu 5-7 eignir í keðju. Þetta geta verið eignir hjá 7 fasteignasölum og 20 lánastofnanir koma að málinu. Það getur tekið 5-6 mánuði að vinda ofan af svona keðjum og svo þegar allt er að smella, allir komnir með greiðslumat, búið að leysa úr öllum fyrirvörum nema bara að selja síðustu eignina þá klikkar það. Seljandinn fær ekki verðið sem hann þarf til að láta kaupin ganga upp og þá þurfa allir að byrja upp á nýtt.
Keðjur eru mjög viðkvæmar og oft rakna þær upp einfaldlega vegna þess að það er enginn einn aðili með yfirsýn yfir þær að fullu.
Það er því algjört skilyrði að ef fólk ætlar að gera tilboð með fyrirvara um sölu að það sé komið með staðfest lánsloforð frá banka, það er einfaldlega ekki hægt að bíða í margar vikur með hnútinn í maganum hvort að fólk nái bæði að selja sína eign sem og fjármagna næstu eign. Þess vegna eru alltaf fleiri seljendur farnir að hafna tilboðum með fyrirvara um sölu, sérstaklega ef eignin sem á eftir að selja er stærri en sú sem er verið að kaupa.
Með því að selja fyrst og kaupa svo þá verður þú alltaf betri kaupandi. Þú ert líklegri til að fá hærra verð fyrir þína eign þar sem þú ert ekki í tímapressu og þú getur boðið betri greiðslur þar sem þitt greiðsluflæði er þekkt og þess vegna eru meiri líkur á því að seljandinn taki þínu tilboði. Það getur munað 4-6 milljónum hversu mikið þú færð í vasann eftir kaup og sölu hvort að þú selur fyrst eða kaupir fyrst.
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
asdis@husaskjol.is - Sími: 863 0402