Ég sá þessa spurningu inn á fjármálatips. Spyrjandinn setti inn að hann ætti 100.000.000 eign og væri með húsnæðislán. Hann átti kærustu sem átti 2.000.000 í sparnaði og þau voru að spá í að hún myndi leggja inn á lánið hans. Það kom skýrt fram að hún átti ekkert í eigninni, þau áttu ekki börn saman og voru ekki skráð í sambúð þannig að hún átti engin réttindi. Ef þau myndu hætta saman þá var þetta bara falleg gjöf sem hún hafði gefið kærastanum sínum.
Ég var mjög ánægð að sjá að engum fannst þetta góð hugmynd og margir karlmenn voru orðlausir yfir ósvífninni í þessum manni að ætla að taka allan sparnaðinn hjá kærustunni til að lækka greiðslubyrðina sína.
Ég get ekki ítrekað þetta nógu mikið. Aldrei nokkurn tímann blanda saman fjármálum ef þið eruð ekki á sama tíma að tryggja ykkar réttindi. Ef þú býrð með maka sem á fasteignina þá áttu ekkert ef þið hættið saman. Það þarf að skoða hvað er eðlilegt framlag hjá báðum aðilum. Eitt sem er mikilvægt að hafa í huga ef þú átt ekkert í fasteigninni þá áttu alls ekki að taka þátt í neinu viðhaldi nema þig langi að gera það og sé alveg sama um að þú sért að byggja undir fjárhagslegt veldi maka þíns.
Við sambandsslit/andlát áttar annar aðilinn sig því miður of oft á að hann er algjörlega réttindalaus, jafnvel eftir 10 ára samband þar sem hann flutti bara til makans og spáði svo ekkert meira í þetta.
Í upphafi skildi endinn skoða og aldrei fara í neitt fjárhagslegt samkrull nema vera búin að ræða allar mögulegar útgönguleiðir ef fólk hættir saman. Hver vill borga niður lán makans með sínum sparnaði og þurfa svo að byrja upp á nýtt eftir 5 ár og eiga ekki einu sinni fyrir útborgun á meðan makinn býr í skuldlausri eign.
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
asdis@husaskjol.is - Sími: 863 0402