fimmtudagur 22.05.2025

Er betra að yfirverðleggja eignir?

Það er ansi algengt að seljendur vilja byrja með of hátt verð þar sem þeim liggur ekkert á og vilja sjá hvað gerist.

Þegar eign kemur ný á markaðinn þá vekur hún mesta athygli. Ef hún er of hátt verðlögð þá eru góðar líkur á því að færri komi að skoða og hún sitji mun lengur en þyrfti á netinu og þegar upp er staðið þá fær seljandinn svipað verð eða jafnvel lægra en ef hún hefði verið rétt verðlögð í upphafi.

Kaupendur í dag hafa gífurlega mikla verðvitund. Það er hægt að skoða ásett verð aftur í tímann, síðasta söluverð og framreikna verðið miðað við markaðinn í dag. Auðvitað eru það ekki 100% vísindi, það geta verið ýmsar ástæður fyrir fráviki. T.d. ef framreikningur er óeðlilega hár þá gæti kaupandinn hafa lent í tilboðsstríði og þurft að borga nokkrar milljónir yfir ásettu til að tryggja sér eignina. Ef framreikningur er óeðlilega lágur þá gætu seljendur hafa verið í klemmu og kaupandinn var með fyrirvaralaust tilboð.

Stundum kemur tilboð sem er næstum því nógu gott strax eftir fyrsta opna húsið. Tilboðið er hálfri milljón undir ásettu og góðar greiðslur. Margir seljendur vilja þá freista þess að hafna tilboðinu og bíða eftir betra tilboð sem hlýtur að koma fyrst að þetta kom strax. Ef það kemur ekki þá eru góðar líkur á því að eignin sitji í smá tíma og seljist jafnvel undir þessu verði eftir 2-3 mánuði. Fólk spyr mig oft hvers vegna ég segi ekki sögur af hinni hliðinni, fólkinu sem hafnaði góðu tilboði og fékk svo miklu betra tilboð löngu seinna.

Í hækkandi markaði getur það auðveldlega gerst en ef þú ert að kaupa þá kaupir þú hvort sem er á hærra verði líka. Auðvitað ef fyrsta tilboðið er lélegt þá er mjög líklegt að þú fáir betra tilboð síðar. Mín ráðlegging er alltaf að koma inn með rétt verðlagða eign þar sem hún selst hraðar og oft á betra verði en yfirverðlagðar.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggiltur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

asdis@husaskjol.is - Sími: 863 0402



Aðrar færslur