Miðleiti 1 - 79.700.000 kr - 108,4 ferm. - 3 herbergi

Fjölbýlishús - 103 Reykjavík

Lýsing eignar

HÚSASKJÓL OG ÁSDÍS RÓSA, LÖGFRÆÐINGUR OG LÖGGILTUR FASTEIGNASALI KYNNA Í EINKASÖLU MIKIÐ ENDURNÝJAÐA ÚTSÝNISÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ Í LYFTUHÚSI VIÐ MIÐLEITI 1 í REYKJAVÍK.

2 svefnherbergi, yfirbyggðar svalir, stæði í bílageymslu og stórkostleg fjallasýn.

*** SÖLUSÝNING: MIÐLEITI 1 ÍBÚÐ 502, MÁNUDAGINN 20. OKTÓBER 2025 KL 17:00-17:30. ÁSDÍS RÓSA ÁSGEIRSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: +3548957784 EÐA EMAIL: ASDISROSA@HUSASKJOL.IS ***

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Miðleiti 1 Íbúð 502.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.

Samkvæmt FMR er eignin skráð 83,5 fm íbúð og 24,9 fm stæði samtals 108,4 fm.

Komið er inn í forstofu með góðum skáp og flísum á gólfi.

Eldhús er með nýlegri eldhússinnréttingu og flísum á gólfi. Fallegt útsýni er úr eldhúsglugga.

Barnaherbergi er með parketi og skáp og útsýni til norðurs.

Baðherbergi er óvenju rúmgott og hefur verið endurnýjað. Stórir skápar og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Stofa er björt og opin með harðparketi á gólfi.

Hjónaherbergi er með harðparketi og skápum og gengið út á sólríkar suður svalir sem eru yfirbyggðar að hluta.

Í kjallara sér geymsla. og sameiginleg hjólageymsla.

Stæði í bílageymslu fylgir eigninni og þar er einnig aðstaða til að þvo bíla og búið er að leggja rafmagn að öllum stæðunum fyrir rafhleðslustöð.

Virkilega góð eign á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík og stutt í verslanir og veitingastaði, Kringluna og Fossvogsdalinn.

Fasteignamat 2026 verður 74.950.000.-

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala netfang:  asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 895-7784

 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

108,4 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: já

Eiginleikar eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 79.700.000 kr
Fasteignamat 68.950.000 kr
Brunabótamat 50.160.000 kr
Stærð 108,4 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1983
Lyfta
Bílskúr
Bílskýli nei
Garður
Skráð 16.10.2025

Upplýsingabæklingur/opið hús

Deila eign



Pin it