Langabrekka 18 - 79.700.000 kr - 118,0 ferm. - 4 herbergi

Fjölbýlishús - 200 Kópavogur

Lýsing eignar

*** SÖLUSÝNING: LANGABREKKA 18 ÍBÚÐ NEÐRI HÆÐ, ÞRIÐJUDAGINN 02. SEPTEMBER 2025 KL 12:00-12:30. ÁSDÍS ÓSK VALSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 8630402 EÐA EMAIL: ASDIS@HUSASKJOL.IS ***

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Langabrekka 18 Íbúð neðri hæð.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.

Neðri sérhæð með sérinngangi, 3 svefnherbergjum og útgengi út á afgirtan sérafnotarétt við Löngubrekku 18, 200 Kópavogi. Skjólsælt og sólríkt sunnanmegin fyrir framan hús. Húsið er skráð 118 fm og einnig er óskráð stór sameiginleg geymsla. Eignin er vel staðsett og stutt í Fossvogsdalinn sem og Kópavogsdalinn. Garðurinn er veðursæll og virkilega notalegt að sitja fyrir framan húsið á sólríkum dögum.  Frábært staðsetning, rólegt hverfi en samt stutt í helstu umferðaræðar. Stutt í leikskólann Fögrubrekku og bæði Snælandsskóla sem og Kóapvogsskóla. MK er einnig í göngufæri og stutt er í íþróttasvæðið Fagralund.

FASTEIGNAMAT 2026 VERÐUR: 76.100.000 KR. 

SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR

Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi, innaf forstofu er þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Frá forstofu er gengið inn í hol með harðparketi og fatahengi. Til vinstri frá holi er eldhús með U-laga innréttingu og eyju, góður borðkrókur við glugga, harðparket á gólfi. Innaf eldhúsi er rúmgott svefnherbergi með harðparketi á gólfi. Stofan er rúmgóð með harðparketi á gólfi, auðvelt að stúka af aukaherbergi í enda stofu og fá þannig 4ja svefnherbergið. Frá stofu er útgengt á afgirtan sérafnotarétt og þaðan út í sameiginlegan garð. Á gangi eru tvö svefnherbergi, bæði með harðparketi á gólfi, innaf hjónaherbergi er fataherbergi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, innrétting og vifta. Íbúðin hefur afnot af mjög rúmgóðri geymslu (sem er í sameign en í dag er hún eingöngu nýtt af þessari íbúð, innaf geymslunni er gamall kyndiklefi með sameiginlegum lögnum fyrir báðar hæðirnar.

Mjög skemmtileg eign á frábærum stað í Kópavogi.

Að sögn fyrri seljanda hefur eftirfarandi verið endurnýjað:
 

2022: Skipt um glugga í eldhúsi og svefnherbergi innaf eldhúsi.
2020 nýr fataskápur í fataherbergi
2016: skipt um harðparkett, ofna og sólbekk í stofu
2015: Hiti lagður í gólf forstofu og þvottahús og flísalagt
2011: Baðherbergi endurnýjað af fagaðila 

Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

118,0 m2 3 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 79.700.000 kr
Fasteignamat 68.900.000 kr
Brunabótamat 55.650.000 kr
Stærð 118,0 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 1972
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 15.08.2025

Upplýsingabæklingur/opið hús

Deila eign



Pin it