Fjölbýlishús - 103 Reykjavík
Húsaskjól og Ásdís Rósa lögfræðingur og löggiltur fasteignasali kynna rúmgóða og vel staðsetta 116,1fm íbúð fyrir eldri borgara (63 ára og eldri) á 2.hæð í VR blokkinni með svölum til suðvesturs. Tvær stofur og eitt svefnherbergi og annað sem er sjónvarpsstofa og hægt að breyta í svefnherbergi. Félagsstarf aldraðra og fjölbreytt þjónusta á jarðhæð. Frábær staðsetning þar sem stutt í verslanir og alla helstu þjónustu.
Nánari lýsing: Íbúðin er á 2.hæð í endanum. Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er íbúðin skráð 105,1 fm. og geymsla í kjallara 11 fm. samtals 116,1 fm. (svokölluð stærri gerð íbúða)
Forstofa: með parketi á gólfi og fataskáp.
Við hlið forstofu er herbergi sem er opið og nýtist sem sjónvarpshol en með möguleika á að loka því.
Svefnherbergið er mjög rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Stofan er parketlögð og útgengt út á góðar svalir.
Borðstofa með parketi á gólfi og hægt að ganga inn í eldhúsi frá stofu eða borðstofu.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu með viðarköntum, tengi fyrir uppþvottavélr. Flísalagt á milli efri og neðri skápa. Parket á gólfi. Innaf eldhúsi er búr með hillum
Baðherbergið er með hvítri innréttingu, flísalagt gólf og veggir. Gott aðgengi í sturtu (án kants). Opnanlegur gluggi.
Þvottahús, hægt er að hafa þvottavél í búrinu sem er inn af eldhúsinu en einnig er aðstaða á hæðinni
Snyrtileg sameign og öll aðstaða til fyrirmyndar.
Björt, falleg og vel skipulögð íbúð í húsi ætluð 63 ára og eldri með möguleika á þjónustu frá Reykjavíkurborg .
Í húsinu er boðið er uppá ýmsa þjónustu og afþreyingu fyrir íbúa hússins, m.a. matsalur, hárgreiðslustofa, fótaaðgerðastofa, föndurstofa og leikfimisalur. Hægt er að fá keyptan heitan mat í hádeginu á virkum dögum. Vel staðsett endaíbúð (suðurendi) í göngufæri við m.a. Kringluna og Borgarleikhúsið. Einnig er hægt að leigja sal. Geymsla fylgir í sameign og sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
Bent er á að seljendur hafa ekki búið í eigninni og þekkja því ekki ástand eignarinnar til hlýtar.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala netfang: asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 895-7784
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Tegund | Fjölbýlishús |
Verð | 94.700.000 kr |
Fasteignamat | 78.350.000 kr |
Brunabótamat | 57.450.000 kr |
Stærð | 116,1 fermetrar |
Herbergi | 4 |
Svefnherbergi | 2 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1985 |
Lyfta | já |
Bílskúr | nei |
Bílskýli | nei |
Garður | já |
Skráð | 18.08.2025 |