Ágúst 2022 - Húsnæðisverðslækkanir í kortunum

Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,2% í júní og hefur þar með hækkað um 25% undanfarna tólf mánuði. Þrátt fyrir að vera rúmlega tvöfalt meiri hækkun en í meðalmánuðinum undanfarin 8 ár þá er þetta minnsta mánaðarhækkun á markaðnum síðan í janúar. Þá má vænta þess að verulegur viðsnúningur verði á verðþróun íbúðarhúsnæðis núna á næstu mánuðum þegar kælandi aðgerðir Seðlabankans fara að hafa áhrif af fullum þunga á kaupendur. 

Nýjustu mælingar Hagstofunnar sýna að verðbólgan er komin upp í 9,9% og hefur ekki verið hærri síðan í september 2009. Þegar verðbólgan er komin á þetta stig er mikilvægt að líta á verðþróun á húsnæðisverði að raunvirði til að fá glögga mynd af þróuninni. Sé það gert má sjá að árshækkunartaktur íbúðaverðs að raunvirði er 17,4% sem er þó nokkuð lægra en hann fór árið 2017 og 2005. Þetta skýrist e.t.v. af því að húsnæðisverðshækkunin undanfarið hefur verið keyrð áfram af peningaprentun í gegnum bankakerfið í krafti lágra vaxta á meðan að hækkunin árið 2017 var að meira leyti tilkomin af undirliggjandi húsnæðisskorti.

Peningaprentun á tímum heimsfaraldursins er ekki séríslensk hagstjórn og má segja að heilt yfir hafi þróuð hagkerfi flest hver brugðist við faraldrinum með þessum hætti. Í því samhengi má einnig nefna að það er ekki bara á Íslandi sem húsnæðisverð hefur hækkað meira en góðu hófi gegnir. Frá upphafi ársins 2020 fram til annars fjórðungs 2022 hefur húsnæðisverð á Íslandi nefnilega aðeins hækkað 0,7%-stigum umfram OECD meðaltalið líkt og fram kemur í nýjustu mánaðarskýrslu HMS. Þá hefur húsnæðisverð í Bandaríkjunum t.a.m. hækkað rúmlega þriðjungi meira en á Íslandi á umræddu tímabili. 

Ef litið er til þeirra ríkja sem hafa verið í sama húsnæðismarkaðsrússíbana og Ísland má sjá að nafnverðslækkanir á íbúðarhúsnæði eru vel mögulegar. Í Ástralíu hefur húsnæðisverð lækkað undanfarna þrjá mánuði og er nú tæplega 3% lægra en það var hæst. Í Stokkhólmi hefur húsnæðisverð lækkað um 8,2% á sama tímabili en báðar lækkanirnar koma í kjölfar vaxtahækkana.  

Það er mikilvægt að átta sig á því að allir eignamarkaðir geta lækkað ef markaðslögmálin ráða för og það er óháð því hvernig söguleg verðþróun hefur verið. Næsta vaxtaákvörðun peningastefnunefndar verður kynnt 24. ágúst og ekki við öðru að búast en nokkurri vaxtahækkun í ljósi þess að verðbólgan er hænuskrefi frá tveggja stafa tölu. Meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu er farinn að lengjast og framundan eru kælandi áhrif aðgerða Seðlabankans. Af öllu þessu er ljóst að nafnverðslækkanir íbúðaverðs eru raunhæfur möguleiki á seinni helmingi ársins. 

Halldór Kári Sigurðarson Hagfræðingur Húsaskjóls S: 856-6933 Netfang: halldork15@gmail.com

Ljósmynd: Luke Stackpoole