Vallholt 5 - 69.700.000 kr - 107,1 ferm. - 3 herbergi

Fjölbýlishús - 300 Akranes

Lýsing eignar

Húsaskjól, Ásthildur Ósk aðstoðarmaður fasteignasala og Ásdís Ósk löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu virkilega vel skipulagða 3ja herbergja íbúð, efri hæð með sérinngangi við Vallholt 5, 300 Akranes

Skipulag íbúðar býður upp á aukna nýtingarmöguleika þar sem geymsla er stór með glugga og getur vel nýst sem þriðja svefnherbergið. Eignin skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi, eldhús, borðstofu, stofu, geymslu, baðherbergi og þvottahús þar inn af.  Eignin er í nýlegu og vel staðsettu tveggja hæða fjölbýli. 


ÍBÚÐIN ER TÓM OG LAUS TIL AFHENDINGAR.

 

NÁNARI LÝSING:
Forstofa: flísar á gólfi, opin inn á gang og rúmgóðir fataskápar.
Eldhús: Sérsmíðuð og vönduð innrétting. Innbyggð uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og spanhelluborð.
Stofa/Borðstofa: Rúmgott rými sem rennur saman við eldhús. Útgengi á mjög rúmgóðar svalir.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, rúmgóðir fataskápar. 
Svefnherbergi #2: Parket á gólfi, fataskápur. 
Geymsla: Rúmgóð með góðum glugga og fataskáp, gæti vel nýst sem þriðja svefnherbergið. 
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir, flísalögð stór sturta með glerskilrúmi. Sérsmíðuð, vönduð innrétting. Upphengt salerni, handklæðaofn. 
Þvottahús: Inn af baðherbergi, gert ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara.

 

SMELLTU HÉR til að ná í upplýsingabækling fyrir eignina.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæft tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka verðmat á þinni eign.

Nánari upplýsingar veitir Ásthildur Ósk Karlsdóttir, email: asthildur@husaskjol.is eða í síma: 864-4935.

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

107,1 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 69.700.000 kr
Fasteignamat 57.750.000 kr
Brunabótamat 52.900.000 kr
Stærð 107,1 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 2022
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 02.09.2024

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it