Rjúpufell 33 - Tilboð - 97,7 ferm. - 3 svefnherbergi

Fjölbýlishús - 111 Reykjavík

Lýsing eignar

4ra herbergja íbúð á 3ju hæð við Rjúpufell 33, 111 Reykjavík. Íbúðin er skráð 97,7 fm og þar af er sérgeymsla í sameign 4,6 fm. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og 2024 var skipt um þak á húsinu. Einnig var skipt um alla ofna í íbúðinni 2022. Einnig var skipt um alla glugga þegar húsið var klætt að utan.

Smelltu hér til að skoða teikningar af eigninni

Lýsing eignar:  Gengið er inn um sameiginlegan inngang í stigahúsi og gengið upp á 3ju hæð. Komið inn í forstofu með stórum fataskáp, plastparket á gólfi. Eldhús og stofa er opið rými. Eldhúsinnrétting er á 2 veggjum, efri og neðri á öðrum veggnum og neðri skápar á móti, eldhúskrókur sem opnar inn í stofu, flísar á mili skápa og plastparket á gólfi sem og á stofu. Innaf eldhúsi er þvottahús með vask og snúrum, dúkur á gólfi. Frá stofu er gengið út á mjög stórar yfirbyggðar svalir. Baðherbergi er með dúk á gólfi, baðkari og viðarinnréttingum. 3 svefnherbergi, barnaherbergin með plastparketi á gólfi og hjónaherbergi er með dúk á gólfi og fataskápum.

Í sameign er sérgeymsla, geymsluskápur og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Einnig fylgir sérmerkt stæði á bílaplani.

Á hvað eru fjölbýli í 111 Reykjavík að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir alla kaupsamninga í 111 Reykjavík 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

97,7 m2 3 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð Tilboð
Fasteignamat 54.400.000 kr
Brunabótamat 50.100.000 kr
Stærð 97,7 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 1974
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 20.09.2024

Deila eign



Pin it