Fjölbýlishús - 270 Mosfellsbær
Virkilega góð 2ja herbergja íbúð á 3ju og efstu hæð við Vefarastræti 7-9. Íbúðin er endaíbúð og með útsýni á 3 vegu. Engin íbúð er við hliðina. Núverandi eigandi er fyrsti eigandi íbúðarinnar og gerði töluverðar endurbætur á henni. Gólfhiti er í íbúðinni, bætt var við innréttingum og einnig var þvottaaðstaða útbúin í geymslunni þannig að baðherbergið er mun rýmra og með betri innréttingum.
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR VEFARASTRÆTI 7-9. Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Smelltu hér til að skoða video af eigninni
Smelltu hér til að skoða teikningar af eigninni
Lýsing eignar: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með parketflísum á gólfi, góðir skápar og gluggi með útsýni. Komið er inn í alrými með stofu og eldhúsi. Eldhúsinnrétting er rúmgóð U-laga með efri og neðri skápum, uppþvottavél og ísskápur fylgja, parketflisar á gólfum og útgengt á suðvestur svalir með útsýni. Baðherbergi er rúmgott með sturtuklefa, handklæðaofni og hvítum innréttingum. Svefnherbergi er með parketflísum, skápum og útsýni. Geymsla er nýtt sem þvottahús og geymsla.
Á hvað eru eignir í Mosfellsbæ að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir alla kaupsamninga í Mosfellsbæ
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Tegund | Fjölbýlishús |
Verð | 64.700.000 kr |
Fasteignamat | 58.850.000 kr |
Brunabótamat | 42.750.000 kr |
Stærð | 74,6 fermetrar |
Herbergi | 2 |
Svefnherbergi | 1 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 2017 |
Lyfta | já |
Bílskúr | nei |
Bílskýli | nei |
Garður | já |
Skráð | 15.01.2025 |