Vallakór 6 - 61.500.000 kr - 69,4 ferm. - 2 herbergi

Fjölbýlishús - 203 Kópavogur

Lýsing eignar

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG  SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR VALLAKÓR 6A. Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign. 

2ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi, sérafnotarétti í suðaustur og stæði í bílageymslu við Vallakór 6A, 201 Kópavogi. Íbúðin er skráð 69,4 fm og þar af er geymslan 4,4 fm.

Smelltu hér til að skoða teikningar af eigninni

Lýsing eignar: 

Gengið er inn um sérinngang beint af bílaplani og aðkoman því sérstaklega þægileg. Komið er inn í forstofu með harðparketi og fataskápum. Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og sturtuklefa, upphengt salerni, gluggi, handklæðaofn og hvít innrétting. Sturtan er mjög rúmgóð, einnig er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Svefnherbergi er rúmgott með harðparketi og fataskápum. Eldhús og stofa er opið rými, harðparkett á gólfi. Eldhúsinnrétting er á einum vegg með efri og neðri skápum. Frá stofu er útgengt á suðaustur sérafnotarétt og þaðan út í sameiginlegan garð.

Merkt sérstæði í bílastæðakjallara fylgir eigninni.

Í sameign er sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla þar sem hver hefur samt sitt afmarkaða hjólastæði. 

Á hvað eru fjölbýli í Kórahverfi að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir alla kaupsamninga í Kórahverfi

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

69,4 m2 1 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 61.500.000 kr
Fasteignamat 57.050.000 kr
Brunabótamat 48.320.000 kr
Stærð 69,4 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 2018
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli
Garður

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it