Þorrasalir 17 - 84.700.000 kr - 106,7 ferm. - 3 herbergi

Fjölbýlishús - 201 Kópavogur

Lýsing eignar

OPIÐ HÚS VERÐUR Í ÞORRASÖLUM 17 ÍBÚÐ 206, FIMMTUDAGINN 17. OKTÓBER  KL. 17:00-17:30. 

Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG  SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR ÞORRASALI 17.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt verðmat á þinni eign. 

Húsaskjól og Pétur Ísfeld Jónsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: þriggja herbergja íbúð á annari hæð í Þorrasölum 17, í Kópavogi. Eignin er skráð 106,7 fm að stærð, þar af íbúðarrými 90,5 fm og geymsla 16,2 fm, og skiptist í alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi, þvottahúsi auk svala sem eru 9,1 fm. Þá fylgir eign stæði bílageymslu og rúmgóð geymsla Einnig eru suðursvalir með fallegt útsýni yfir golfvöll GKG og Heiðmörk.

Hér er hægt að skoða stutt yfirlitsmyndband af Þorrasölum 17

Nánari lýsing
Anddyri: Í anddyri eru flísar á gólfi, fataskápur og fatahengi.Pláss fyrir skóskáp/hillur og spegil. Hurð er á anddyrir þannig að hægt er að loka.
Alrými: er með stofu, borðstofu og eldhúsi, harðaparket er á gólfi og stórir gluggar leiða út á suðursvalir og gera rýmið bjart og notalegt. Þetta er rými sem býður upp á mikla möguleika.
Stofa: er mjög rúmgóð með pláss fyrir borðstofuborð og sjónvarpskrók og sófa grúppu með aðgengi að svölum. Á gólfi er harðparket.
Eldhús: er með fallegri U laga innréttingu, gott skipulag, mikið vinnupláss og mikið skápapláss. Í eldhúsi er helluborði með viftu yfir, uppþvottavél, tvöfaldur vaskur, ofn í góðri vinnuhæð og pláss fyrir rúmgóðan ísskáp. Á gólfi er harðparket.
Hjónaherbergi: er bjart og rúmgott með góðum glugga, stórum fataskáp og á gólfi er harðparket. Gott pláss er fyrir skrifborð eða barnavöggu til viðbótar við hjónarúm.
Barnaherbergi: er bjart og rúmgott með góðum glugga, fataskáp og harðparket á gólfi.
Baðherbergi: er rúmgott með ljósar sandlitaðar flísar á gólfi og veggjum. Klósett er upphengt, innrétting undir vaski er með rúmgóðum skúffum, yfir vasknum er spegill yfir allri innréttingunni og við hlið vasks er hár skápur fyrir handklæði. Sturtan er rúmgóð með gleri og handklæðaofn á bakvið hurðina.
Þvottaherbergi: er með pláss fyrir þvottavél og þurrkara, einnig er gott vinnuborð með vask. Hillur eru á vegg og snúrur við endann á rýminu sem hægt er að toga upp til rýmið nýtist sem best. Á gólfi eru flísar. 
Svalir: eru rúmgóðar, snúa í suður og eru með járn handrið. Horft ert út á sameiginlegt svæði með rólu og grasflöt en einnig sést í Heiðmörkina og golfvöll GKG.
Geymsla: er rúmgóð og staðsett á jarðhæð.
Sérmerkt stæði í bílageymslu: er á jarðhæð.
Sameign: er með stóra hjóla og dekkjageymsla þar sem samkomulag er um notkun.

Hér er hægt að nálgast teikningar af eign

Íbúðin er sýnd tóm og er laus strax til afhendingar við kaupsamning.

Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is
 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

106,7 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 84.700.000 kr
Fasteignamat 76.900.000 kr
Brunabótamat 60.540.000 kr
Stærð 106,7 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 2014
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli
Garður nei
Skráð 13.06.2024

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it