Laugavegur 5 - 48.800.000 kr - 50,4 ferm. - 2 herbergi

Fjölbýlishús - 101 Reykjavík

Lýsing eignar

GULLMOLI Í MIÐBÆNUM!

Húsaskjól og Ásdís Rósa lögfræðingur og löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu  50,4 fm hæð á Laugavegi 5 í Reykjavík.

Húsið er óvenjulegt í götumyndinni því það er langt og mjótt og gluggar eru á 2 hliðum. Eignin hefur ‘franskt’ yfirbragð með um 3 metra lofthæð og miðbæjarsjarminn nýtur sín til fullnustu.


SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA.

Gengið er inn frá porti og upp fallegan tréstiga.

Komið er inn í forstofu, gluggar eftir endilangri íbúðinni, svefnherbergi er ekki í lokuðu rými en væri hægt að loka því. Laus skápur.

Baðherbergi hefur verið snyrtilega endurnýjað.

Eldhús er endurnýjað með hvítri innréttingu í U.

Stofa snýr út að Laugavegi með 2 stórum gluggum. 

Aukin lofthæð er í eigninni, 3,0 M skv. teikningum.

Sjón er sögu ríkari!

Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og sér geymsla sem fylgir íbúðinni.

Húsfélagið á tæpar 5 milljónir í sjóð. Til stendur að laga útitröppur og áætlaður kostnaður er 300-500 þúsund.

Frábær eign fyrir þá sem vilja vera í hringiðu miðbæjarins.

*** Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala netfang:  asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 895-7784 ***

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

50,4 m2 1 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 48.800.000 kr
Fasteignamat 44.300.000 kr
Brunabótamat 28.800.000 kr
Stærð 50,4 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 1930
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður nei

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it