Laufrimi 22 - 65.300.000 kr - 79,4 ferm. - 3 herbergi

Fjölbýlishús - 112 Reykjavík

Lýsing eignar

OPIÐ HÚS VERÐUR Í LAUFRIMA 22 ÍBÚÐ 102, FIMMTUDAGINN 24. OKTÓBER KL. 18:00-18:30.  

Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is 

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG  SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR LAUFRIMI 22.   

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt verðmat á þinni eign. 

Húsaskjól og Pétur Ísfeld Jónsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: þriggja herbergja íbúð á jarðhæð, með sérinngangi, í Laufrimi 22, í Reykjavík með fasteignanúmer 2218491. Birt stærð eignar er skráð 79,4 fm. Íbúðin skiptist í alrými með eldhús og stofu, hjónaherbergi, barnaherbergi, geymslu (sem hægt er að nota sem barnaherbergi), baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt er á stóra verönd frá stofunni og þaðan er hægt að fara út á sameiginlega lóð með leiktækjum fyrir krakka.

Hér er hægt að skoða stutt yfirlitsmyndband af Laufrimi 22

Nánari lýsing

Fostofa: Gengið er inn í forstofuna inn um sérinngang beint af jarðhæð. Í forstofunni eru dökkar flísar eru á gólfi, tvöfaldur innfeldur fataskápur sem nær upp í loft og fatahengi og pláss fyrir spegil á vegg á móti.
Geymsla / lítið auka herbergi: Innaf forstofunni er geymsla með parketi á gólfi og góðum opnanlegum glugga. Geymslan hefur verið nýtt sem auka svefnherbergi hjá núverandi eiganda.
Borðstofa og setustofa: eru saman í opnu rými með parketi á gólfi. Útgengt er út á stóra suðvestur verönd með skjólveggjum frá setustofunni. í alrými er hol með mjög góðum nýlegum skápum sem nýtast vel sem auka geymslu og skápapláss fyrir íbúðina.
Eldhús: er í opnu rými hjá stofunni. Eldhúsið er með hvítri fulningainnréttingu í U með efri og neðri skápu. Opið er yfir í stofuna frá eldhúsinu. Gott skipulag, mikið vinnupláss og skápapláss er til staðar. Í eldhúsi er helluborði með viftu yfir, uppþvottavél, vaskur, ofn og pláss fyrir ísskáp. Parket er á gólfi.
Hjónaherbergi: er bjart og rúmgott með góðum gluggum og stórum fataskáp og á gólfi er parket.
Barnaherbergi: er bjart og rúmgott með góðum gluggum, fataskáp og á gólfi er parket.
Baðherbergi: Baðherbergið var endurnýjað fyrir um 7 árum síðan. Fallegar ljósar flísar eru á gólfi og á veggjum. Baðkar er með sturtuaðstöðu. Hvít innrétting er undir vaski og salernið er upphengt með innbyggðum vatnskassa. Í vinstri hluta rýmisins er þvottaaðstaða. Tengi er fyrir þvottavél, vinnuvaskur, vinnuborð og góðar innréttingar. 
Sameign: er með hjóla- og vagnageymslu þar sem samkomulag er um notkun.

Hér er hægt að nálgast teikningar af eign

Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

79,4 m2 1 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 65.300.000 kr
Fasteignamat 55.700.000 kr
Brunabótamat 38.900.000 kr
Stærð 79,4 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 1995
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður nei
Skráð 30.09.2024

Upplýsingabæklingur/opið hús

Deila eign



Pin it