Lækjasmári 4 - 59.900.000 kr - 71,3 ferm. - 2 herbergi

Fjölbýlishús - 201 Kópavogur

Lýsing eignar

EIGNIN ER SELD OG ER Í FJÁRMÖGNUNARFERLI.

Björt og falleg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérafnotarétti við Lækjasmára 4, 201 Kópavogi. Íbúðin er skráð 71,3 fm og þar af er geymsla í sameign 5,7 fm.

Smelltu hér til að skoða video af eigninni

Smelltu hér til að skoða teikningar af eigninni

Lýsing eignar:  Gengið er inn í forstofu með fataskáp. Innaf forstofu er þvottahús með flísum á gólfi, vaski og snúrum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, bæði baðkar og sturta, ljós innrétting. Hjónaherbergi er með parketi á gólfi og skápum. Eldhús er með innréttingu á 2 veggjum, efri og neðri skápum, borðkrókur við glugga og parket á gólfi. Stofan er við hlið eldhúss, parket á gólfi og útgengt á sérafnotarétt sem snýr í hásuður. 

Í sameign er sérgeymsla, hjóla- og vagnageymsla sem og dekkjageymsla.

Staðsetning og nærumhverfi:
Eignin er staðsett í mjög eftirsóttu hverfi. Það er mjög stutt í alla þjónustu, skóla, leikskóla og íþróttir. Hinum megin við götuna er Smáraskóli, Fífan,  Breiðablik og Sporthúsið. Mjög stutt er í Smáralind og Smáratorg. .Einnig eru Lindir í göngufæri með Krónuna og Elko. Leikskólar í göngufæri eru Arnarsmári og Lækur. Menntaskólinn í Kópavogi er í grenndinni og tekur um 15 mín að ganga.  Rúsínan í pylsuendanum er Kópavogsdalurinn með öllum sínum útivistarmöguleikum er í göngufæri.

Samantekt:
Mjög rúmgóð sérhæð á frábærum stað, nokkrar mínútur í Kópavogsdalinn, eina helstu náttúruperlu Kópavogs.

Á hvað eru fjölbýli í 201 Kópavogi að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir alla kaupsamninga í 200 Kópavogi 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdisrosa@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 895-7784

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

71,3 m2 1 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 59.900.000 kr
Fasteignamat 55.500.000 kr
Brunabótamat 37.900.000 kr
Stærð 71,3 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 1997
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður nei
Skráð 12.07.2024

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it