Húsið í Holtinu - 96.000.000 kr - 60,1 ferm. - 5 herbergi

Sumarhús - 271 Mosfellsbær

Lýsing eignar

*** SÖLUSÝNING Í HOLTAMÝRI (HÚSIÐ Í HOLTINU), LAUGARDAGINN 5.OKTÓBER  KL. 16:00-16:30. ÁSDÍS ÓSK VALSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 863-0402 EÐA EMAIL: ASDIS@HUSASKJOL.IS ***

MEÐ ÞVÍ AÐ BÓKA ÞIG Í SÖLUSÝNINGU GETUR FASTEIGNASALI LÁTIÐ VITA EF SÖLUSÝNINGIN FELLUR NIÐUR AF ÓVIÐRÁÐANLEGUM AÐSTÆÐUM.

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG  SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR HOLTAMÝRI (HÚSIÐ Í HOLTINU). Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Húsið í Holtinu (Holtamýri) er einstök perla við Hafravatn. Landið er 1 hektara eignarlóð sem er svo skógi vaxin að tilfinningin er að þú ert komin í ævintýraheim Narnia. Nýverið er byrjað að byggja frístundahús við sama afleggjara og mun því smátt og smátt skapast notalegur byggðakjarni þrátt fyrir að Húsið í Holtinu sé meira afsíðis þar sem það er við endann á afleggjarnum. 15-20 mínútna akstur frá höfuðborgarsvæðinu gerir þessa staðsetningu fullkomna hvort sem þú vilt vinna í bænum og búa afsíðis eða eiga notalegt afdrep í fríum.

Húsið stendur ofarlega og er gott útsýni yfir Hafravatnið frá landinu. Húsið er töluvert stærra en skráðir fermetrar segja til um þar sem byggt hefur verið við það og einnig eru góðir geymsluskúrar á landinu.

Smelltu hér fyrir drónamyndband af eigninni

Húsið er frístundahús á 3 hæðum með steyptum grunni. Gengið er inn á jarðhæð og komið inn í rúmgóða forstofu með flisum á gólfi og fataskáp. Köld sambyggð geymsla og þaðan er gengið út á palla þar sem er m.s. gróðurhús. Frá forstofu er einnig gengið inn í hol þar sem annars vegar er opið inn í eldhús og einnig gengið upp á svefnloft. Eldhús, stofa og sólskáli er opið rými. Eldhúsið er með uppþvottavél og stórri gaseldavél sem myndar hjarta eldhússins ásamt kamínu sem snýr inn að stofu, flísar á gólfi. Stofan er með plastparketi á gólfi og sólskálinn er með dúk á gólfi, frá sólskála sem er nýttur sem borðstofa er gengið út pall með viðargeymslu. Baðherbergi er á móti eldhúsi, það er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, innrétting og gluggi. Innaf eldhúsið er vinnuherbergi með fataherbergi/geymslu og frá vinnuherbergi er gengið niður í mjög stóra hjónasvítu, innaf henni er þvottahús ásamt sturtu. Frá hjónaherbergi er gengið út á pall með potti. Innaf hjónaherbergi er rúmgóð geymsla með sérútgengi. 

Svefnloftið er mjög rúmgott og skiptist í 2 stór opin svefnrými ásamt gestasalerni. Frá báðum svefnrýmum er gengið út á svalir. 

Eignin og lóðin hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og mikil vinna verið lögð í ytra umhverfi með miklum pöllum, útieldstæði, rólum og góðum geymsluskúrum. 

Húsið í holtinu er algjörlega einstök eign örstutt frá höfuðborgarsvæðinu.

Á hvað eru eignir við Hafravatn að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir alla kaupsamninga í við Hafravatn 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka  sölumat á þinni eign. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

60,1 m2 3 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Sumarhús
Verð 96.000.000 kr
Fasteignamat 31.600.000 kr
Brunabótamat 30.400.000 kr
Stærð 60,1 fermetrar
Herbergi 5
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 1997
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður nei
Skráð 27.09.2024

Upplýsingabæklingur/opið hús

Deila eign



Pin it