Hjaltabakki 26 - 57.700.000 kr - 86,0 ferm. - 3 herbergi

Fjölbýlishús - 109 Reykjavík

Lýsing eignar

3ja herbergja íbúð á 2. hæð í mikið endurnýjuðu húsið við Hjaltabakka 26, 109 Reykjavík. Íbúðin er skráð 86,0 fm og þar af er geymslan 8,8 fm.

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG  SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR HJALTABAKKA 26. Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Smelltu hér til að sjá eignamyndband um Hjaltabakka 26

Smelltu hér til að sjá teikningar af eigninni

Lýsing eignar:  Gengið er í forstofu með harðparketi á gólfi og fatahengi. 2 svefnherbergi bæði með harðparketi og hjónaherbergi með skápum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar og innrétting, gott skápapláss og tengi fyrir þvottavél. Búið er að stúka af aukaherbergi með léttum vegg úr hluta af eldhúsi. Eldhúsið er með innréttingu á 2 veggjum, neðri skápar og efri á öðrum veggnum, harðparket á gólfi. Stofan er með harðparketi á gólfi sem og borðstofa/herbergi og þaðan er gengið út á svalir.

Í sameigin er sameiginlegt þvottahús, sérgeymsla ásamt hjóla- og vagnageymslu.

Kostir við að búa í Bökkunum:

Hverfið er mjög barnvænt en börn þurfa ekki að labba yfir götu til að komast í skóla og leikskóla. Stutt í alla þjónustu, til að mynda er Heilsugæsla og Nettó í Mjódd ásamt fleiri verslunum. Elliðarárdalur er í göngufæri og hverfið sjálft mjög gróðursælt og sérstaklega fallegt á haustin.

Á hvað eru fjölbýli í 109 Reykjavík að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir alla kaupsamninga í 109 Reykjavík 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

86,0 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 57.700.000 kr
Fasteignamat 49.950.000 kr
Brunabótamat 43.500.000 kr
Stærð 86,0 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1968
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 28.08.2024

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it