Heiðargerði 120 - 139.700.000 kr - 197,7 ferm. - 6 herbergi

Einbýlishús - 108 Reykjavík

Lýsing eignar

SELD MEÐ FYRIRVARA

 

Upplýsingar veita: 
Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali, í síma 862 5270 eða petur@husaskjol.is
Steingrímur Þór Ágústsson, aðstoðarmaður fasteignasala,   í síma 869 2831 eða steingrimur@husaskjol.is

 

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Í OPIÐ HÚS OG/EÐA SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR HEIÐAGERÐI 120.

 

Húsaskjól kynnir einbýlishús á 2 hæðum auk kjallara við Heiðargerði 120, 108 Reykjavík. Húsið var mikið endurnýjað 2007-8. Efri hæðin var mikið tekin í gegn 2007 og neðri hæðin algjörlega 2008, hiti var settur í gólf, skipt um allar raf- og vatnslagnir, innréttingar og tæki. Þakið var málað fyrir um 8 árum. Einnig fylgir eigninni frístandandi bílskúr og stór garður með palli og útigeymslu. 


Smelltu hér til að skoða teikningar af Heiðargerði 120, 108 Reykjavík

Lýsing eignar:
Miðhæð: Gengið er upp tröppur og komið inn í forstofu með flísum á gólfi og skáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa, handklæðaofni og glugga. Eldhús er endurnýjað. Rúmgóð innrétting á einum vegg auk L-laga innréttingar á móti, opið inn í borðstofu og parket á gólfi. 3 samliggjandi stofur með parketi á gólfi. Sólskálinn er með flísum á gólfi og kamínu og þaðan er gengið út á pall og gras. Mjög skjólgóður garður.
Efrihæð: Gengið upp fallegan viðarstiga og komið í hol með parketi. 3 svefnherbergi, öll mjög rúmgóð með parketi og 2 með skápum. frá hjónaherbergi er gengið út á svalir. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðkari og hvítri innréttingu. 
Kjallari: Gengið niður stiga og komið inn í þvottahús með flísum og lagnagrind, innaf þvottahúsi er geymsla sem og önnur köld undir stiga. Útgeng í garð frá þvottahúsi.
Bílskúr er frístandandi með glugga og aðkeyrslu frá Grensásveg.
Bílastæði: Einkabílastæði er fyrir framan bílskúr, aftan við hús.

Samantekt: Virkilega spennandi og falleg eign miðsvæðis í Reykjavík

Hvað segja eigendur um húsið: Húsið er vel byggt með einstaklega góðu flæði. Garðurinn er fallegur með góðu undirlagi og vel drenaður. Mikil þjónusta í göngufæri s.s. Skeifan og Krónan.

Upplýsingar veita: 
Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali, í síma 862 5270 eða petur@husaskjol.is
Steingrímur Þór Ágústsson, aðstoðarmaður fasteignasala,   í síma 869 2831 eða steingrimur@husaskjol.is


Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign.

Á hvað eru einbýlishús í 108 Reykjavík að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir alla kaupsamninga í 108 Reykjavík
 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

197,7 m2 3 svefnherbergi 2 baðherbergi Bílskúr: já

Eigindi eignar

Tegund Einbýlishús
Verð 139.700.000 kr
Fasteignamat 125.400.000 kr
Brunabótamat 102.000.000 kr
Stærð 197,7 fermetrar
Herbergi 6
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 2
Byggingarár 1956
Lyfta nei
Bílskúr
Bílskýli nei
Garður
Skráð 20.06.2024

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it