Austurberg 12 - 49.900.000 kr - 63,5 ferm. - 2 herbergi

Fjölbýlishús - 111 Reykjavík

Lýsing eignar

Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: mikið endurnýjaða og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í húsi sem hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Íbúðin er skráð samtals 63,5, fm að stærð og þar af er 5,0 fm sér geymsla í sameign. Góð staðsetning þar sem stutt er í skóla-leikskóla, sund og aðra íþróttaaðstöðu ásamt heilsugæslu og annarri verslun og þjónustu.  

VINSAMLEGAST SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í OPIÐ HÚS OG FÁ SENDAN UPPLÝSINGABÆKLNING

Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698 9470, netfang: johanna@husaskjol.is 
 

Gólfefni íbúðarinnar eru vínilhúðað korkparket og flísar.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í anddyri/hol sem með tvöföldum hvítum fataskáp. Eldhúsið er endurnýjað með ljósri innréttingu með efri-og neðri skápum að hluta og borðkrók, keramikhelluborð, ofn og vifta. Opið er úr eldhúsinu inn i stofu-og borðstofu sem er opið og bjart rými, útgengi út á rúmgóðar suðurrsvalir. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu og skápur með innbyggðum vaski, tengi fyrir þvottavél. Hjónaherbergið er rúmgott með góðum endurnýjuðum hvítum fataskápum.
Í sameign er rúmgott þvottahús og þurrkherbergi, sameiginleg hjóla og vagnageymsla og sér rúmgóð geymsla.

Hér er um að ræða mikið endurnýjaða og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð í barnvænu hverfi í Breiðholtinu þar sem stutt er í leik-,grunn og framhaldskóla, sund og aðra íþróttaaðstöðu, ýmis konar verslun og þjónustu ásamt heilsugæslu. Góðar samgönguleiðir.

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698 9470, netfang: johanna@husaskjol.is

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

63,5 m2 1 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 49.900.000 kr
Fasteignamat 43.350.000 kr
Brunabótamat 29.100.000 kr
Stærð 63,5 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 1975
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 04.09.2024

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it