Ásbraut 7 - 64.900.000 kr - 89,7 ferm. - 3 herbergi

Fjölbýlishús - 200 Kópavogur

Lýsing eignar

ÁSBRAUT 7 ER SELD MEÐ FYRIRVARA. GRÍÐARLEGUR ÁHUGI VAR Á EIGNINNI, VIÐ ERUM MEÐ 19 KAUPENDUR Á SKRÁ AÐ LEITA SÉR AÐ GÓÐUM UPPGERÐUM EIGNUM Í HVERFINU.

Pantaðu  verðmat fyrir þína eign.

Meðmæli fyrri viðskiptavina

 

SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR ÁSBRAUT 7

HÚSASKJÓL OG ÁSDÍS RÓSA LGF KYNNA Í EINKASÖLU: Bjarta og rúmgóða 89,7 fm 3ja herb íbúð á 3.hæð með miklu útsýni við Ásbraut 7 í Kópavogi. Opin og björt íbúð,  2 góð svefnherbergi. Möguleiki að fá innbú með að hluta eða öllu leyti því seljendur eru að flytja úr landi.

Komið er inn í forstofu með merbau parketi og nýlegum stórum skáp.
Eldhús er á hægri hönd og er það með hvítri innréttingu á 2 veggjum og opið í stofu. Broðkrókur við gluggann.
Stofan er með parketi og stórum nýlegum glugga, gengið út á suðursvalir.
2 rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni og þaðan er útsýni út á sjó yfir Fossvoginn. Hjónaherbergi er með nýlegum stórum skáp veggja á milli.
Baðherbergið var endurnýjað 2019. Flísalagt í hólf og gólf, walk in sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og þvottaaðstaða.
í kjallara er sameiginleg hjólageymsla, sameiginlegt þvottahús og sér geymsla.

Að sögn seljenda hefur húsið fengið gott viðhald:
2011 Háþrýstiþvottur, sprunguviðgert og málað
2014 stétt og tröppur lagaðar og sett snjóbræðsla
2017 Þakklæðning og rennur
2019 dren
2021 húsið málað og skipt um glugga eftir þörfum.

Rúmgóð eign á vinsælum stað, stutt í skóla, leikskóla, heilsugæslu, sundlaug, verslanir og alla þjónustu.

*** Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala netfang:  asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 895-7784 ***

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

89,7 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 64.900.000 kr
Fasteignamat 58.500.000 kr
Brunabótamat 39.050.000 kr
Stærð 89,7 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1966
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 29.09.2024

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it