Álfhólsvegur 43 - 59.700.000 kr - 77,0 ferm. - 3 herbergi

Fjölbýlishús - 200 Kópavogur

Lýsing eignar

Falleg og mjög vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð við Álfhólsveg 43, 200 Kópavogur. Þvottahús innan íbúðar og mikið útsýni frá íbúð. Íbúðin er skráð 77,0 fm og þar af er geymslan 7,5 fm.

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG  SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR ÁLFHÓLSVEG 43. Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign. 

Lýsing eignar:  Komið er inn í forstofu með parketi á gólfi og skáp. Eldhús er með innréttingu á 2 veggjum, efri og neðri skápar, flísar á milli skápa og parket á gólfi, borðkrókur við glugga. Stofan er með parketi á gólfi og miklu útsýni. 2 svefnherbergi bæði með parketi og hjónaherbergi með skápum, frá barnaherbergi er gengið út á suðursvalir. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturta, gluggi og hillur. Þvottahús er innan íbúðar með máluðu gólfi, glugga og innréttingu.

Í sameign er rúmgóð sérgeymsla með glugga. 

Kostir við að búa á Álfhólsveginum:

Það er mjög stutt í Hamraborg sem er með bókasafni, kaffihúsum, matsölustöðum, strætókjarna, Krónunni, heilsugæslu, banka, apóteki, gleraugnabúð, handavinnuverslun, blóma- og gjafavöruverslun, dýralækni og Salnum menningarhúsi Kópavogs. Það hentar einstaklega vel ef maður kýs að ganga/taka strætó frekar en að keyra bíl.  Svo er líka stutt í búðir á Nýbýlaveginum s.s. Bónus, Dominos og margt fleira. Einnig er stutt rölt í Kópavogsdalinn sem er frábært útivistarsvæði með göngustígum og andatjörn. Stutt er að keyra í sundlaug Kópavogs sem er staðsett á Kársnesinu, Smáralind og Kringluna. Það er grunnskóli í göngufæri og engin þörf á að ganga yfir stórar götur og Menntaskóli Kópavogs er í um 2 mín göngufæri.

Á hvað eru fjölbýli í 200 Kópavogi að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir alla kaupsamninga í 200 Kópavogi 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

77,0 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 59.700.000 kr
Fasteignamat 53.000.000 kr
Brunabótamat 37.250.000 kr
Stærð 77,0 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1973
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður nei
Skráð 01.07.2024

Upplýsingabæklingur

Deila eign



Pin it