Fjölbýlishús - 108 Reykjavík
EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA. MIKILL ÁHUGI VAR Á EIGNINNI VIÐ ERUM MEÐ 18 KAUPENDUR Á SKRÁ AÐ LEITA SÉR AÐ 3JA HERBERGJA EIGNUM Í HVERFINU.
Pantaðu verðmat fyrir þína eign.
3ja herbergja endaíbúð á 3. hæð í mikið endurnýjuð húsi við Álftamýri 16, 108 Reykjavík. Íbúðin er skráð 75.6 fm og þar af er geymsla í sameign 6,1 fm. Íbúðin er sérstaklega björt þar sem hún er endaíbúð og því með fleiri glugga. Mjög gott útsýni er frá íbúðinni.
Samkvæmt yfirlýsingu seljanda þá hefur húsið verið töluvert endurnýjað:
2018: Þak endurnýjað og strompur fjarlægður
2017: Ný hellulögn með snjóbræðslu undir var lögð fyrir framan húsið
2013: Húsið var múrviðgert og málað að utan auk endurnýjunar glugga í sameign
2013: Skolpið var fóðrað og skipt um öll niðurföll í sameiginlegum rýmum
Búið er að skipta um gler í öllum gluggum nema í stofunni.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR ÁLFTAMÝRI 16.
Smelltu hér til að sjá myndband af eigninni
Smelltu hér til þess að sjá teikningar af eigninni
Lýsing eignar:
Gengið er inn um sameiginlegan inngang og komið inn í forstofu með parketi og fatahengi. 2 svefnherbergi bæði með parketi og fataskápum. Eldhúsinnrétting er u-laga með efri og neðri skápum, 2 gluggar, borðkrókur og parket á gólfi, útsýni yfir Ejsuna. Stofan er rúmgóð með útgengt á suðursvalir. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, gluggi og innrétting.
Í sameign er sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Á hvað eru fjölbýlishús í 104 Reykjavík að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir alla þinglýsta kaupsamninga frá 2006
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
*** Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala netfang: asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 895-7784 ***
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Tegund | Fjölbýlishús |
Verð | 59.700.000 kr |
Fasteignamat | 52.950.000 kr |
Brunabótamat | 33.850.000 kr |
Stærð | 75,6 fermetrar |
Herbergi | 3 |
Svefnherbergi | 2 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1961 |
Lyfta | nei |
Bílskúr | nei |
Bílskýli | nei |
Garður | já |
Skráð | 04.12.2024 |