Fjölbýlishús - 105 Reykjavík
Háteigsvegur 30, 105 Reykjavík seldist á einu opnu húsi og er í fjármögnunarferli. Margir eru að leita að jarðhæð með sérinngangi og 2-3 svefnherbergjum. Erum því með marga kaupendur á skrá sem eru að leita að sambærilegri eign.
Á hvað eru sérhæðir í 105 Reykjavík að seljast? Smelltu hér til að sjá alla kaupsamninga á sambærilegum eignum í 105 Reykjavík
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign.
Fáðu ábendingu á nýjar eignir úr kaupóskakerfinu
Meðmæli fyrri viðskiptavina
Fylgdu mér á Instagram
Fylgdu mér á TikTok
4ra herbergja íbúð á jarðhæð (skráð kjallara) í reisulegu og fallegu húsi á Háteigsvegi 30, 105 Reykjavík. Íbúðin er með sérinngang og þar sem þvottahús er innan íbúðar þá er þetta næstum því eins og lítið notalegt sérbýli þrátt fyrir að 3 íbúðir séu í húsinu.
Hús og íbúð hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum.
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR HÁTEIGSVEG 30. Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA VIDEO AF EIGNINNI
Smellið hér til að skoða teikningar af eigninni
Lýsing eignar:
Gengið er inn um sérinngang meðfram húsinu. Komið inn í forstofu með flísum á gólfi og fatahengi, þaðan er gengið inn í hol með vínilparketi. 3 rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, öll með vinylparketi og 1 með lausum skápum. Stofan er með stórum gluggum og vínilparket á gólfi, innaf stofu er eitt svefnherbergið. Eldhús er með endurnýjaðri innréttingu, l-laga, efri og neðri skápar, vínylparket á gólfi. Baðherbergi er endurnýjað og mjög rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, rúmgott baðherbergi með 2 sturtuhausum og steyptum stórum botni sem nýtist vel sem baðkar. Þvottahús innan íbúðar, flísar á gólfi, laus skápur í þvottahúsi. Hátt er til lofts og vítt til veggja í íbúðinni. Garðurinn er stór og mjög fínn, sameiginlegur, snýr til suðurs og er mjög sólríkur á sumrin
Í sameign er sérgeymsla og sameiginlegt salerni.
Að sögn seljanda og fyrri seljanda hefur eftirfarandi verið endurnýjað á síðustu árum:
2015 voru Skolplagnir (gólfplatan var brotin upp), dren, neysluvatnslagnir, eldhúsinnrétting, baðherbergi, gólfefni og allir veggir pússaðir niður. Einnig var þakið endurnýjað og skipt um rennur 2019
Staðsetning og nærumhverfi:
Mjög stutt í miðbæinn. Kjarvalsstaðir og Klambratún eru í göngufæri. Kjarvalsstaðir eru með gott kaffihús. Klambratún er með stærri almenningsgörðum í Reykjavík og gefur hverfinu mikið líf. Þar er hægt að spila körfubolta, fótbolta frisbígolf, þar er leikvöllur fyrir yngstu börnin og sérstaklega á sumrin er mjög mikið líf í garðinum. Það er stutt í Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands. Stutt er í Landspítalinn við Hringbraut. Hallgrímskirkja, Tækniskólinn og Austurbæjarskóli eru í göngufæri. Einnig er Háteigsskóli og Ísaksskóli í göngufæri. Mikið úrval er af leiksskólum í miðbænum og í Hlíðunum. Sundhöll Reykjavíkur er í göngufæri, sem er nýlega uppgerð. Einnig er Mathöllin á Hlemmi í göngufæri. Húsið staðsett miðsvæðis er en samt rólegt.
Á hvað eru hæðir í 105 Reykjavík að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir alla kaupsamninga í 105 Reykjavík
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Tegund | Fjölbýlishús |
Verð | 85.700.000 kr |
Fasteignamat | 72.350.000 kr |
Brunabótamat | 50.050.000 kr |
Stærð | 111,1 fermetrar |
Herbergi | 4 |
Svefnherbergi | 3 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1946 |
Lyfta | nei |
Bílskúr | nei |
Bílskýli | nei |
Garður | já |
Skráð | 30.10.2024 |