Sæbólsbraut 16 - 159.000.000 kr - 314,7 ferm. - 7 herbergi

Raðhús - 200 Kópavogur

Lýsing eignar

HÚSASKJÓL KYNNIR:

HÚSASKJÓL OG ÁSDÍS RÓSA LÖGFRÆÐINGUR OG LÖGGILTUR FASTEIGNASALI KYNNA Í EINKASÖLU: Virkilega fallegt 314,7 fermetra raðhús á 3 hæðum við Sæbólsbraut 16 í Kópavogi. Auðvelt að loka á milli og hafa sér íbúð í kjallaranum. Húsið hefur fengið gott viðhald og hentar stórri fjölskyldu. Möguleiki á 6 svefnherbergjum.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur.
Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign. 

1. hæð.
Forstofa er flísalögð, rúmgóð með skápum.
Innbyggður bílskúr.
Opið rými er parketlagt. Opið nýlegt eldhús frá HTH með borðkrók. Granít borðplötur og AEG tæki.
Gestasalerni er flísalagt.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar með parketi, gengið er út í garð með góðum sólpalli.

2. hæð.
Gengið er upp steyptan stiga og efri hæðin er einstaklega björt með stórum gluggum og þakgluggum.
3 óvenju rúmgóð svefnherbergi með skápum og hluti fermetra óskráður (undir súð.) Gengið út á sólríkar austur svalir úr 2 herbergjum.
Baðherbergi er flísalagt, mjög rúmgott með sturtu, hornbaðkari og viðar innréttingu.
Sjónvarpsstofa er opið rými en auðvelt að breyta í fjórða svefnherbergið.

Kjallari
Gengið er niður steyptan stiga í flísalagt hol. Kjallarinn hefur áður verið notaður sem íbúð og auðvelt að breyta aftur í íbúð.
Sérinngangur, rúmgóður með hengi.
Þvottahús er rúmgott með góðri innréttingu.
2 mjög stór herbergi eru í kjallaranum, annað notað sem svefnherbergi og hitt sem stofa.
Baðherbergi er flísalagt, innrétting og sturta.
Góðar geymslur og búr.

Lóðin er afgirt og með góðum sólpalli og bílaplan er nýlegt og með snjóbræðslukerfi.
Eignin hefur fengið gott viðhald:
2005 þaksaumur yfirfarinn.
2014 múrviðgerðir.
2015 skipt um nokkur gler og listar endurnýjaðir á austur gafli. Húsið málað.
2017 þak málað. Hús mikið endurnýjað að innan sjá uppl í bæklingi.
2020 bílaplan endurnýjað, lögð ný hitalögn í planið og útiljós endurnýjuð.

FASTEIGNAMAT 2024 VERÐUR 147.500.000.-

*** Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala netfang:  asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 895-7784 ***

 

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls


Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

314,7 m2 5 svefnherbergi 3 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Raðhús
Verð 159.000.000 kr
Áhvílandi 0 kr
Fasteignamat 130.800.000 kr
Brunabótamat 128.250.000 kr
Stærð 314,7 fermetrar
Herbergi 7
Svefnherbergi 5
Baðherbergi 3
Byggingarár 1984
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður nei
Greiðslubyrði* 667.800 kr
Útborgun** 31.800.000 kr
Skráð 26.08.2023

* M.v. 80% verðtryggt lán til 35 ára (ath aðeins til viðmiðunar)
** Lágmarks útborgun m.v. að 80% lán sé tekið (ath aðeins til viðmiðunar)