Álfheimar 48 - 69.500.000 kr - 111,0 ferm. - 4 herbergi

Fjölbýlishús - 104 Reykjavík

Lýsing eignar

HÚSASKJÓL KYNNIR:

Álfheimar 48, 104 Reykjavík, er seld og er í fjármögnunarferli. Mjög mikil eftirspurn er eftir 4ra herbergja íbúðum í hverfinu. Við erum með 19 kaupendur á skrá sem eru að leita að sambærilegri eign í húsi sem hefur fengið gott viðhald.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign. 

Fáðu ábendingu á nýjar eignir úr kaupóskakerfinu

Meðmæli fyrri viðskiptavina

HÚSASKJÓL OG ÁSDÍS RÓSA LÖGFRÆÐINGUR OG LGF KYNNA Í EINKASÖLU: Fallega 111 fm. 4ra herbergja íbúð við Álfheima 48, endaíbúð sem snýr að Laugardalnum. 2 svefnherbergi sem voru 3, fataherbergi og tvennar svalir. Virkilega góð fjölskyldueign á vinsælum stað.


Komið er inn í forstofu með góðum skáp.
Eldhús er flísalagt í hólf og gólf. Hvít innrétting með granít á borðum. Innfelld lýsing.
Stofa og borðstofa eru bjartar með gluggum í 2 áttir og parketi á gólfi. Gengið út á góðar flísalagðar svalir.
Svefnherbergisgangur er með parketi.
Stórt herbergi með 2 gluggum sem áður voru 2 herbergi, auðvelt að breyta til baka. Lausir skápar.
Baðherbergi er flísalagt, sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél.
Hjónaherbergi er óvenju rúmgott með vestursvölum (horft yfir Laugardal) og fataherberbergi.

Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og hjólageymslur.

Einnig er skráð 8,4 fm sér geymsla í kjallara og önnur geymsla undir stiga sem er ekki hluti af skráðum fermetrum.

Húsið hefur fengið mjög gott viðhald á undanförnum árum:
Skipt um þak 2007
Múrviðgerðir og málað 2019 og 2020.
Svalir flísalagðar.
Gluggar og gler endurnýjað að mestu í íbúðinni.
Skólp og dren 2005 og 2018.
Nýlegt teppi á stigagangi.

Vinsælt hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla og Laugardalinn.

*** Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala netfang:  asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 895-7784 ***

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls


Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

111,0 m2 3 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 69.500.000 kr
Áhvílandi 0 kr
Fasteignamat 60.500.000 kr
Brunabótamat 45.200.000 kr
Stærð 111,0 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 1959
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Greiðslubyrði* 291.900 kr
Útborgun** 13.900.000 kr
Skráð 20.07.2023

* M.v. 80% verðtryggt lán til 35 ára (ath aðeins til viðmiðunar)
** Lágmarks útborgun m.v. að 80% lán sé tekið (ath aðeins til viðmiðunar)