Iðufell 6 - 47.000.000 kr - 84,2 ferm. - 2 svefnherbergi

Fjölbýlishús - 111 Reykjavík

Lýsing eignar

HÚSASKJÓL KYNNIR:


Iðufell 6, 111 Reykjavík, er selt og er í fjármögnunarferli. Mjög mikil eftirspurn er eftir endurnýjuðum 3ja herbergja íbúðum í húsum sem hafa fengið gott viðhald á höfuðborgarsvæðinu. Við erum með 19 kaupendur á skrá sem eru að leita að sambærilegri eign. 

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign. 

Fáðu ábendingu á nýjar eignir úr kaupóskakerfinu

Meðmæli fyrri viðskiptavina

HÚSASKJÓL OG ÁSDÍS RÓSA LÖGFRÆÐINGUR OG LÖGGILTUR FASTEIGNASALI KYNNA: Fallega og nýlega uppgerða að miklu leiti, 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í klæddu fjölbýli við Iðufell 6. Skóli, sund og íþróttastarfsemi er í göngufæri. Börn þurfa ekki að fara yfir götu. Sér merkt bílastæði er fyrir framan hús. Auk þess eru mikið af bílastæðum við húsið.
Skv Fasteignamati ríkisins er eignin skráð 84,2 fermetrar.


Eignin skiptist í hol, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og sér geymslu í kjallara.

Nánari lýsing:
Hol
er rúmgott með harðparketi og skáp.
Eldhúsið er bjart með nýlegri hvítri innréttingu með efri og neðri skápum. Tengi fyrir þvottavél í eldhúsi en einnig er sameiginlegt þvottahús í húsinu.
Stofan eru rúmgóð. Harðparket er á stofunni. Frá stofu er gengið út á svalir.
Svefnherbergin eru tvö, harðparket er á gólfum í þeim báðum og fataskápur í báðum. 
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, dökk innréttingu undir vaski og efri skáp með spegil.
Svalir snúa í suður og eru flísalagðar. Búið er að byggja yfir svalirnar og setja gólfefni og nýtast þær sem sólstofa.
Geymsla í sameign er sér, rúmgóð geymsla með hillum.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús og hjóla og vagnageymsla. 


*** Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í félagi fasteignasala netfang:  asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 895-7784 ***
 

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls


Ertu í fasteignahugleiðingum erlendis?  Húsaskjól er meðlimur í Leading Real Estate Companies of the World

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

84,2 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 47.000.000 kr
Áhvílandi Ekki skráð
Fasteignamat 40.750.000 kr
Brunabótamat 35.650.000 kr
Stærð 84,2 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1973
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Greiðslubyrði* 197.400 kr
Útborgun** 9.400.000 kr
Skráð 06.03.2023

* M.v. 80% verðtryggt lán til 35 ára (ath aðeins til viðmiðunar)
** Lágmarks útborgun m.v. að 80% lán sé tekið (ath aðeins til viðmiðunar)